23.08.2007 00:12:42 / dabbispanjo
spurningar
1. Þekkirðu mig?
2. Hvað heiti ég fullu nafni?
3. Hefuru kysst mig? ;*
4. Langar þig að kyssa mig? ;*
5. Hefurðu eða langar þig að gera eitthvað meira?
6. Hversu lengi hefuru þekkt/ kannast við mig?
7.Hvernig eru augun á mér á litinn? o.O
8. Hversu vel helduru að þú þekkjir mig?
9. Hefuru logið að mér?
10. Veistu uppáhaldsmatinn minn?
11. Hvað myndiru gera ef ég kæmi heimtil þín nakinn?
12. Í hvað flokk myndiru flokka mig, td. emo, hnakki..?
13. Hefuru séð mig nakinn?
14. Hvað er það vandræðalegasta sem hefur gerst á milli okkar?
15. Er eitthvað sem þú bara getur ekki sagt mér?
16. Hefuru einhverntíma verið "skotin/n" í mér?
17. Afhverju gerðiru þessar spurningar ?
18. Eitthvað að lokum?
19. Ætlaru að setja þetta á þína síðu?
»
23.05.2007 23:13:41 / dabbispanjo
Jæja, ég fékk ekki afmælisgjöfina sem ég var að vonast eftir,
semsagt sigur hjá Liverpool. En annars er þetta búinn að vera fínn
dagur, nóg að gera í vinnunni í að senda fólki sms til að þakka
fyrir afmæliskveðjurnar. Fór aðeins fyrr heim úr vinnunni til að
komast í sturtu og ná leiknum, fór sko til Kef að horfa á hann. Og
svo auðvitað til að hitta hana Þóru. Fórum á Paddy´s að horfa á
leikinn og svo skelltum við okkur á Duus að fá okkur að
borða. En annars þá hef ég ekki mikið meira að segja einsog
er.
See u later!!
»
22.05.2007 01:03:15 / dabbispanjo
Nei ég hef ekki verið duglegur að blogga undanfarið, hef líka
fengið nokkra skammir fyrir það. Sorry fólk!! En annars þá er margt
búið að gerast síðan ég bloggaði síðast. Til að byrja með þá fór ég
til læknis til að láta skoða á mér öxlina og hnéð. Hann sendi mig í
sneiðmyndatöku og röntgen, sem er aðeins meira en læknirinn sem ég
hitti á undann gerði. Hann drullaði bara yfir mig, en nei það hefði
hann ekki átt að gera. Það kom í ljós að ég var með klemmda sin í
öxlinni og rifinn liðþófa í hnénu í þriðja skipti. Þannig ég þurfti
að láta sprauta einhverju lyfi í öxlina og fara í aðgerð á hnénu.
Ég fór í aðgerðina á hnénu 24.apríl. Var frá vinnu frá þeim degi og
fór aftur að vinna 10.maí. Er enþá að jafna mig í hnénu eftir
aðgerðina en líður samt betur eftir á. En samt stærsta
fréttin er samt sú að rétt áður en ég fór í aðgerðina þá kynntist
ég stelpu, eða réttara sagt FRÁBÆRI stelpu. Og við erum búin að
vera að hittast soldið og það gengur bara allt mjög vel, erum
byrjuð saman og solleis. Þetta er yndisleg stelpa sem heitir Þóra.
Núna verður maður að drífa sig í að kaupa íbúð í Keflavík sov maður
geti eitt meiri tíma með henni og minna bensíni til að hitta
hana.
Já og svo er ég kominn aftur í dyravörsluna, eða allavega á
útkalls lista á Paddy´s. Var að vinna þar á laugardaginn, það var
bara gaman, og skemmtilegt að komast aftur í svona aukavinnu. Vona
að ég fái að vinna þar oftar, þetta er bara skemmtilegur staður. Ég
er eiginlega búinn að hanga þar flestar helgar undanfarið. Nema
þessa helgi, nema til að vinna. Ég tók mér smá djamm pásu um
helgina. Ég, Þóra, Ari og Óli ákváðum bara að spila á föstudaginn,
reyndar ætlaði Jenný með. En hún beilaði. Hennar missir. Svo þegar
við vorum búin að spila þá skelltu Ari og Óli sér niður í bæ og ég
og Þóra lögðumst upp í sófa að horfa á tv. og svo fórum við bara að
sofa. Svo var bara unnið á laugardaginn.
1.júní þá er afmælið mitt og hennar Evu haldið á Yello,
ykkur sem er boðið. BANNAÐ að taka Jenný á þetta og BEILA. En
muniði samt að ég á afmæli 23.maí.
»
10.04.2007 22:18:49 / dabbispanjo
Það er
óhætt að segja að þetta hafi verið skemmtilegustu páskar
hingað til hjá mér. Eða svona bæði og. Byrjaði á því að fara
að hitta nokkra vini á miðvikudaginn sem voru að drekka. Á
meðan ég er þar þá hringir Jón Frímann félagi og biður mig að
koma útá Seltjarnarnes og ná í sig og Mumma og Hauk og
auðvita geri ég það. Ég skutla strákunum niður á Laugarveg,
og þegar JF lappar út úr bílnum þá misstígur hann sig og
dettur og svo kemur bíll og keyrir yfir löppina á honum. En
hann vill samt halda áfram að djamma. Það gengur það vel að
þegar við erum búnir að lappa í u.þ.b. 10.mín þá dettur JF
því að hann getur ekki lappað meira. Og þá þarf að skutla
honum á spítala. Þangað skutla ég honum, og hann sendir mig
heim því að ég var orðinn þreyttur og átti að fara að vinna
kl. 10. Ég ætla að fara heim, en nei þá hringir síminn og
vinkona mín biður mig að koma niður í bæ til að skutla henni
heim. Og auðvitað geri ég það, og þegar við komum heim til
hennar biður hún mig að kíkja upp til að tala því hún hefði
verið að rífast við kallinn sinn. Og svo þegar ég er að fara
frá henni þá hringir Mummi og biður mig að koma og ná í hann
og JF á sjúkrahúsið og skutla þeim heim. Og auðvita gerir ég
það. Svo þegar ég náði loks að fara að sofa þá var ég búinn
að vera vakandi í 25klt. og átti að mæta í vinnu ettir 3klt.
En ég mætti ekki í vinnu ég var of þreyttur. En svo á
fimmtudeginum fór ég heim til Torfa félaga að drekka með
honum og Snjólaugu. Svo koma þangað Allý og Magga og við
förum í partý þar sem ég enda í að vera alla nóttina, svaf
þar. Það var fínt að sofa þar, því að ég og Magga svæfum í
svefnsófa inn í stofu á meðan Eva Björg, Eva G, Sakki og
Skúli sváfu öll í sama rúmi. Svo á föstudaginn fer ég aftur
heim til Evu til að byrja að drekka, en fer svo heim til
Gunna félaga og held áfram að djamma þar. Svo er farið niður
í bæ. Þar var bara gaman, en svo á leiðinni heim um klukkann
6.30 þá hringir síminn. Og það eru flippuðu stelpurnar tvær,
þær Inga og Erla. Þær biðja mig um að koma til Eyja á
laugardagskvöldinu, og auðvitað segi ég nei en þær sætta sig
ekki við nei. Þannig ég segist hugsa málið, það dugar næstum
ekki heldur. En svo vakna ég í hádeginu á sunnudeginum og
ákveð að fara til þeirra. Ég kem til Eyja um klukkann 23. og
það er strax byrjað að drekka því að eina ferðin heim á
sunnudeginum var klukkann 8. Náði samt ekki að vera fullur
þetta kvöld, og hætti að djamma aðeins fyrr en áætlað var. En
sunnudagurinn var aðeins betri. Kem í kef um 13. Svo klukkann
18 þá er farið í mat til mömmu og klukkann 20 þá er byrjað að
drekka og það var ekki hætt fyrr en um 4.
Verð að segja að sunnudagskvöldið hafi verið skemmtilegast.
Vonandi skemmtið þið ykkur jafnvel og ég um
páskanna.
»
20.03.2007 18:39:13 / dabbispanjo
Hvaða hálvitum datt í hug að lögleiða vændi. Þetta er með því
heimskulegasta sem ég hef heyrt. Það er búið að vera nokkrar
fréttir um vændi á Íslandi undafarið og svo núna á að fara að
lögleiða það. Ég hef ekki enn hitt manneskju sem er sammála því að
vændi eigi að vera leyft. Það á bara að banna sölu og kaup á vændi
alveg. Og reyndar bara herða refsingar við því frekar en að leyfa
það. Verð bara að játa að ég hálfskammast mín fyrir að búa á
Íslandi núna.
En annars þá var helgin bara nokkuð góð. Fór í vinnupartý á
flöskudaginn. Við skelltum okkur í pool og tókum stutt mót þar. Það
voru drukknir þó nokkrir bjórar þar, reyndar það margir að þegar ég
fór í bæinn þá var ég kominn með ógeð af bjór. Svo á laugardaginn
skellti ég mér attur á djammið og þá með Jóni F. og Hauki twin. Við
byrjuðum á Paddy´s. Þegar við komum þangað hitti Jón einhvern kall
sem hann þekkir eikkað smá, en kallinn heldur að hann sé afi Jóns
þannig hann splæsti nokkrum skotum og bjór á félaganna.
Muna svo að kvitta í gestabók!!!!!!!!!
»
14.03.2007 22:17:11 / dabbispanjo
jæja það er komið soldið síðan ég skrifaði eikkað síðast. En
nýjustu fréttir af mér eru þær að ég náði í mótorhjólið á
mánudaginn, og tók stuttann rúnt á því. Bauð einnig Garðari félaga
á rúntinn, hann var ekkert smá happy. Hann er að fara að taka
prófið þannig maður varð að leyfa honum að finna fiðringinn. En
annars þá er alveg nóg að gera hjá mér í vinnu. En ég tók mér samt
tíma til að kíkja í bíó í gær með Jónu K og Gunna. Við fórum að sjá
The number 23. Hún var geggjuð. Núna er ég hræddur við töluna 23.
Ég á nefnilega afmæli 23. maí. Og svo er ég fæddur 1985 og 1+9+8+5
gerir 23. En núna er ég að vonast ettir því að það fari að koma
gott veður svo ég geti farið að hjóla meira. Hata helvítis veðrið á
Íslandi!!!!
»
03.03.2007 02:11:56 / dabbispanjo
Jæja þá er maður kominn heim. Ferðin út gekk ágætlega, við þurftum
að millilenda í London og eyða þar nokkrum klukkutímum. Það var
soldið leiðinlegt að hanga þar. En við vorum komnir heim til ömmu
um tíu leitið um kvöldið. Við náðum meira að segja jarðarförinni,
við bjuggumst ekki við því. Svo restina af tímanum sem við vorum
þar honum eyddi maður mest bara að hlusta á tónlist, lesa eða hanga
á pub. Maður drakk nóg af bjór úti fyrir næstu vikurnar. Fór út að
borða með 2 vinkonum mínum á miðvikudaginn, kíktum svo á einn pub.
Þar drakk ég ekki nema 2 bjóra, en það var nóg. Glösin voru svona
1-2lítrar. Svo var komið heim klukkan 4 um nóttina og farið að sofa
og vaknað 6.30 til að pakka. Ferðin heim var í lengri kantinum
líka. Lögðum af stað frá ömmu um 7.30 og vorum komnir heim klukkan
12 á miðnætti í gær. Þurftum að eyða meiri tíma á flugvellinum í
London á leiðinni heim. Bara boring.
»
23.02.2007 23:13:26 / dabbispanjo
jæja núna kemur nokkra daga pása í að blogga því ég er að fara til
spánar, því að í dag þá missti ég afa minn. ég, pabbi minn og
bróðir minn ætlum að kíkja út að hitta fjölskylduna og vera þar í
nokkra daga. þið fáið kannski að vita hvernig ferðin gekk þegar ég
kem heim attur, við komum á fimmtudaginn. bæ í bili.
»
19.02.2007 18:44:51 / dabbispanjo
Jæja þá er þessi helgi búin, og núna er ég kominn í áfengis
pásu. Helgin var þannig að á föstudaginn byrjaði ég að drekka með
Freysa félaga svo kíkti ég niður í bæ og hitti þar helling af
fólki. Skemmti mér bara mjög vel, fyrir utan að það lokaði allt
mjög snemma sem var kannski bara gott því að ég var orðinn soldið
ölvaður, lendi næstum í slagsmálum við gamlan vinnufélaga. Það
reyndar byrjaði sem leikslagur en svo æstist hann eikkað. Svo á
laugardaginn fór ég heim til Jobba félaga og Torfi kíkti þangað
líka og við drukkum, spjölluðum og spiluðum. Og hann Jobbi rakaði
hárið af mér, þannig ég er orðinn skalli attur. Svo um 1 leytið
kíkti ég niður í bæ og byrjaði á paddys sem var bara stuð. Svo var
skellt sér á H-Punktinn þar hitti ég nokkra félaga og vinkonur sem
ég hafði ekki séð lengi og þar má nefna hann Agga og Hörpu konuna
hans, það var gaman að sjá þau að djamma í kef. Fékk reyndar vægt
hjartáfall þegar ég sá þau. Og svo í lokinn þá fór einhver kall að
böggast í mér, en einsog vanalega þá slóst ég ekkert en vinkona mín
reyndi samt að æsa kallinn í að fara í mig sem betur fer gekk það
ekki því ég er ekki mikið fyrir slagsmál.
Fór líka í bíó á fimmtudaginn með Jónu K, Gunna og Júlíu, fórum
á Alpha Dog. Ég mæli með henni hún er nokkuð góð og Justin
Timberlake stendur sig bara mjög vel. Kom á óvart.
En hafiði það gott í vikunni og munið að kvitta í
gestabókin!!!!
»
13.02.2007 23:54:37 / dabbispanjo
já ég er ekki frá því að ég er að standa mig betur með þessa
síðu en ég gerði með þá gömlu. en annars þá eru 2 dagar búnir af
þessari viku og so far so good. svo er málið að krossleggja
fingurna og biðja þess að ég fái vinnuna sem ég var að sækja um,
semsagt á fasteignasölu á Kanarí. það væri frábært að fá hana því
þá get ég hjólað allann ársins hring');">
" width="15" height="15">
»
13.02.2007 00:29:37 / dabbispanjo
Já þá er helgin búin, fór og datt í það á laugardaginn. Var kominn
heim til Jóns þar sem ég gisti kl. 10. Soldið langt en
skemmtilegt djamm. Kíkti á Paddys, H.inn og Trix. Og hitti fullt af
fólki sem ég hafði ekki hitt lengi og svo kynntist ég nokkrum
nýjum.
»
10.02.2007 20:56:10 / dabbispanjo
kominn laugardagur, kláraði allt sem þurfti að klára í vinnunni í
dag þannig það er fyllerí í kvöld. og plana utanlandsferð með
vinunum. ætlum að skella okkur til búlgaríu, það verður bara stuð.
jæja þið sem ætlið að djamma skemmtið ykkur þið hin aumingja þið.
»
09.02.2007 00:15:29 / dabbispanjo
já það er að koma helgi, en það verður samt ekkert fyllerí. ég
þarf að vinna alla helgina, var núna að klára 15 tíma vinnu og er
ekkert smá þreyttur. svo brjáluð vinna alla helgina geggjað stuð
jippí gaman gaman. góða helgi öll sömul. og drekka fyrir mig
líka.
og skrifa í gestabók asnarnir ykkar!!!!!!
»
06.02.2007 20:28:27 / dabbispanjo
jæja, ég gleymdi notendanafninu og passwordinu á hina síðuna þannig
ég bjó bara til nýja. ég náði að setja inn 2 myndir núna. það koma
fleirri með tímanum.
»